Erni brugðið við Sundhöllina: Hringdi strax í 112

Erni Bergmanni Jónssyni var mjög brugðið þegar hann kom úr sundi í Sundhöll Reykjavíkur um tíuleytið að kvöldi. Hann greindir frá málinu í Hundasamfélaginu á Facebook þar sem hann segir:

„Var að koma úr sundi í Sundhöll Reykjavíkur. Á bílastæðinu heyrði ég geltandi hund í lokaðri farangursgeymslu bíls (ekki station bíll),“ hann ákvað að hafa strax samband við Neyðarlínuna:

„Hringdi strax í 112 neyðarlínuna sem sagði þetta vera í fínu lagi. Er það rétt hjá neyðarlínunni er þetta í lagi?“

Margir voru mjög ósáttir við svörin sem Örn fékk.

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, svaraði honum og sagði:

„Skrifa bílnúmerið og tilkynna til MAST. Þetta stenst ekki dýrsvelferðarlög.“

Birkir nokkur kom eigandanum til varnar:

„Guð minn góður hvað er að því að skilja hundinn eftir í búri inní bíl að vetri til? hvaða vísindi hafið þið lesið sem bendir til þess að kaldur bíll verður súrefnislaus? Þetta eru fáranlegustu rök sem ég hef lesið.“

Örn er ekki sáttur við viðbrögð Neyðarlínunnar: „Hvar og hvernig gerir ég athugasemdir við símtal 112, konan sem afgreiddi símtalið neitaði að gefa upp nafn sitt né að fengi að tala við yfirmann hennar.“ Var honum bent á að senda erindi.