Erni brá þegar hann sá tilboðið frá Sjóvá: Hækkun upp á 335 þúsund krónur

Örn Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnurekandi, verður ekki með tryggingar sínar hjá Sjóvá á næsta ári eftir að hafa fengið tilboð í tryggingar frá félaginu. Örn skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann greinir frá tilboðum sem hann fékk í tryggingapakka fyrir skemmstu.

Örn segir að í gegnum tíðina hafi hann tryggt hjá Sjóvá og sú saga telji áratugi.

„Fyrir þó nokkrum árum lærðist mér hins vegar að fastir kúnnar með sjálfvirka endurnýjun þar fá ekki að njóta þeirrar tryggðar sem þeir sýna fyrirtækinu. Almennt má segja að fastir kúnnar þar fái verri kjör en þeir sem koma nýir inn í viðskipti.“

Örn segir að tjónasaga hans sé frekar fábrotin eins og gengur og gerist hjá meðalmanninum. Þó hafi verið gengið í kaskótryggingu vegna skemmdarverka sem unnin voru á lakki nýrrar bifreiðar í hans eigu árið 2020.

„Ekki stóð reyndar til að láta lagfæra þessar skemmdir en þar sem Sjóvá fullyrti að þetta yrði ekki til að skerða framtíðarkjör mín lét ég slag standa. Fyrir allar tryggingar hjá Sjóvá hafði ég greitt iðgjöld fyrir árið 2020 upp á 575 þúsund en inni í þeim telja þrjár bifreiðar, íbúðarhús, sumarhús, ferðavagn o.fl. Þegar mér barst svo greiðslukrafa í lok ársins 2020 vegna ársins 2021 fyrir nákvæmlega sömu tryggingar kom hins vegar í ljós að kjör mín átti að skerða vegna fyrrnefnds tjóns og hafði þá heildarpakkinn hækkað um 60 þúsund eða í 635 þúsund samtals,“ segir hann í grein sinni.

Svo fór að Örn leitaði tilboða hjá hinum tryggingafélögunum og færði hann sig í framhaldinu til Varðar. Hann kveðst áður hafa verið í viðskiptum þar og ekki orðið var við að þjónustan þar sé lakari en annars staðar.

„Fyrir stuttu leitaði ég svo aftur tilboða hjá öllum tryggingafélögunum vegna nákvæmlega sama pakka og áður. Hjá Verði stóðu iðgjöldin nánast í stað frá fyrra ári og hefur nú verið endurnýjað þar fyrir árið 2022. Það tilboð sem skar sig hins vegar verulega úr var frá Sjóvá, en sá pakki sem fyrir árið 2021 kostaði 635 þúsund kostar 970 þúsund fyrir árið 2022. Það verður að teljast nokkuð rífleg hækkun, tæplega 53%, og ber þess að geta að algjört tjónleysi hefur verið á árinu 2021.“

Örn leitar svo að ástæðunum fyrir þessu og segir:

„En þá ber á það að líta að Sjóvá brynnti nýlega hlutabréfakálfunum sínum með því að ganga í bótasjóði sem safnast hefur hressilega í, greinilega vegna oftekinna iðgjalda. Hlutabréfakálfar Sjóvár sugu nefnilega nýlega til sín gegnum spena bótasjóða félagsins 2.500 milljónir. Slík ofurfóðrun hlýtur að kalla á að rétta þurfi sjóðina við og þá er nærtækast að ganga á tryggingartaka, sem á endanum borga veisluna fyrir kálfana.“

Örn segir að flestir tryggingartakar segi aldrei neitt og borgi þegjandi og hljóðalaust.

„Þetta dæmi er enn ein staðfestingin á því að við endurnýjun trygginga er full ástæða til að fá tilboð frá öllum tryggingafélögunum á hverju einasta ári. Þeir sem það gera ekki mega búast við því að vera hafðir að féþúfu. Þá er rétt að geta þess að félagi minn sem býr í Noregi, þar sem verðlag er ekki ósvipað og hér, greiðir NOK 3.000 eða ISK 45.000 í iðgjald fyrir ábyrgðartryggingu á sambærilegum bíl og ég er með tilboð í frá Sjóvá upp á ISK 145.000. Eru Norðmenn svona miklu betri ökumenn en við hér á Fróni að tjón eru ekki nema þriðjungur þar á við hér?“