Erna Ýr: Willum Þór lofaði fimm sinnum að mismuna ekki borgurum – „FIMM SINNUM“

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglum um sóttkví þannig að þríbólusettir mega nú sækja vinnu eða skóla og sækja nauðsynlega þjónustu þrátt fyrir að hafa verið útsettir fyrir smiti.

Gilda reglurnar aðeins fyrir einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti og einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir.

Blaðakonan Erna Ýr Öldudóttir er ekki sátt við Willum Þór og rifjar upp að hann hafi sagt í desember að hann hafi ekki ætlað að mismuna óbólusettum. Fram kom í fréttum þá að hann teldi ekki vænlegt að bólusettir hafi önnur réttindi gagnvart sóttvarnaaðgerðum en þeir sem eru óbólusettir.

„Við eigum held ég að horfa heildstætt á þetta þannig að hver og einn geti nýtt sér þau úrræði miðað við hans stöðu, eða einstaklingurinn, til þess að geta athafnað sig eins og hann þarf og vill. Þannig að við eigum að varast það að vera að skipta þessu upp í einhverja hópa,“ sagði Willum í Reykjavík síðdegis 8.desember og benti á að bólusetning væri val.

„Síðan eru auðvitað margar ólíkar ástæður fyrir því að fólk þyggur ekki bólusetningu. Það er mín afstaða og skoðun að við eigum að virða þau sjónarmið, þau ólíku sjónarmið sem liggja þar að baki. Þetta á að vera val hvers og eins.“

Erna Ýr er ekki sátt:

„FIMM SINNUM í desember lofaði Willum Þór því að hann mundi ekki mismuna borgurunum í landinu,“ segir hún á Twitter. „Til viðbótar er ákvörðunin ekki borin undir ríkisstjórn eða tekin til umræðu á Alþingi.“