Erna Ýr vill að Þórólfur fari á eftirlaun strax

Fyrr í dag greindi Hringbraut frá því að enn einn metdagurinn hefði verið í gær í fjölda greindra Covid-smita hér á landi. Alls greindust 178 manns og var það raunar annar dagurinn í röð þar sem metfjöldi smita greindist. Daginn þar áður höfðu greinst 168 og fyrir skömmu greindust 167 manns.

Hringbraut deildi fréttinni á Facebook-síðu sinni sem vakti töluvert umtal. Nokkur fjöldi einstaklinga vekja máls á hinum ýmsu hliðum Covid-faraldursins og öllu því sem honum fylgir. Sumir lýsa yfir stuðningi við Þórólf og aðgerðir þríeykisins, en aðrir gagnrýna hvernig staðið hefur verið að aðgerðum.

Athygli vekur að í athugasemdakerfi Facebook undir frétt Hringbrautar birtist afar áhugaverð skoðun frá Ernu Ýr Öldudóttur, blaðakonu og samfélagsrýni.

Hún liggur ekki á skoðunum sínum og slengir fram kröfu á Þórólf.

Hringbraut spurði hvort það ástand sem nú ríkir í samfélaginu muni ekki ósjálfrátt kalla á enn strangari samkomutakmarkanir á endanum.

Erna er því aldeilis ekki sammála og svarar í athugasemdakerfinu. Hún vill skikka Þórólf á eftirlaun: „Nei takk það er búið að bólusetja langtum meira en þarf til að fá hjarðónæmi. Þetta er komið gott. Hann þarf að fara á eftirlaun strax,“ segir Erna.