Erna Ýr sá sjálf um fara með eigin rusl – Vill fá sorphirðugjaldið endurgreitt

Sorphirða í borginni hefur verið í miklum ólestri síðustu vikur. „Það er allt búið að vera í rusli,“ sagði Valur Sigurðarson, rekstrarstjóri Sorphirðu Reykjavíkur, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Vandinn er margþættur. Óeðlileg snjókoma í febrúar sem stíflaði allt. Þá varð þriðjungur starfsliðs sorphirðunnar settur í einangrun vegna Covid.

„Það er hægt að fara með þetta á grenndarstöðvar. Þegar þær eru fullar biðjum við fólk að skilja þetta ekki eftir fyrir utan gámana, það er mikið búið að vera að fjúka í dag í þessu, eða þá að fólk fari bara með þetta á Sorpu sjálft,“ sagði Valur.

Meðal þeirra sem hefur séð um að fara með eigin rusl er blaðakonan Erna Ýr Öldudóttir. „Tíndi líka talsvert rusl sem hafði fokið úr yfirfullum tunnum sem hafa ekki verið tæmdar vikum saman,“ segir hún á Twitter. Hver tunna kostar mörg þúsund krónur á ári og vill Erna fá að vita hvort hún geti fengið endurgreitt. „Ætli sé hægt að fá endurgreitt fyrir þjónustu sem ekki er veitt, hjá Reykjavíkurborg?“