Erna Ýr ósátt og segir „skítlegt“ af Erlendi að klaga í lögregluna

Erna Ýr Öldudóttir, blaðakona sem hefur meðal annars starfað á Morgunblaðinu, Viljanum og Útvarpi Sögu, vandar Erlendi S. Þorsteinssyni, yfirmanni þróunarsviðs CCP, ekki kveðjurnar á Twitter.

Forsagan er sú að Erlendur birti mynd frá Torfhildargötu á Twitter-síðu sinni í gær, en á myndinni má sjá fjölmörg ökutæki sem búið er að leggja ólöglega. Erlendur – og eflaust fleiri á svæðinu – eru þreyttir á þessu ástandi og kalla eftir því að lögregla bregðist við með því að sekta ökumenn.

„Hvað ætli það sé við málaða miðlínu og skilti, sem er svona svakalega óskýrt fyrir bílstjóra? Þetta er staðan í Torfhildargötu á hverjum degi, núna er kominn tími til að sekta,“ sagði Erlendur sem taggaði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu á Twitter-síðu sinni.

Erna Ýr er ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum og lét hún til sín taka í athugasemd undir færslunni.

„Skítlegt að klaga samborgarana til lögreglunnar eins og einhver DDR snitch,“ sagði Erna Ýr sem lét vanþóknun sína í ljós með tjákni af þumli sem vísar niður. Líkti hún Erlendi við uppljóstrara Stasi í Austur-Þýskalandi en þeir njósnuðu gjarnan um samborgara sína og klöguðu þá til yfirvalda.

Erlendur spyr á móti: „Hvað leggur þú til, þegar þessum jólasveinum á það að vera ljóst að þarna eigi ekki að leggja og að þeir séu fyrir öðrum?“ Erna svarar því ekki.

Ökumönnum ætti þó að vera ljóst að það má ekki leggja ökutækjum sínum hvar sem er og ættu skilti, eins og er á meðfylgjandi mynd, að vera ágætis vísbending um það. Sektir fyrir að leggja ökutækjum ólöglega eru yfirleitt um 20 þúsund krónur.