Erna Ýr kallar eftir lögreglurannsókn á Bessastöðum: „Eins og staðarhaldarar í Ásmundarsal urðu að þola“

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að hann beri ábyrgð á því að ekki hafi verið farið eftir gildandi sóttvarnareglum við veitingu Íslensku bókmenntaverðlaunanna á Bessastöðum í síðustu viku. „Sá eða sú, sem gegnir embætti forseta Íslands, á að ganga á undan með góðu fordæmi,“ sagði hann í færslu á Facebook.

„Ég biðst innilega afsökunar á þessum leiðu mistökum.“

Það eru ekki allir par sáttir með þessi mistök eftir allt sem á undan er gengið í faraldrinum. Þar á meðal blaðamaðurinn Erna Ýr Öldudóttir sem spyr:

„Hvar er lögreglurannsóknin, eins og staðarhaldarar í Ásmundarsal urðu að þola?“

Hún heldur áfram á Twitter þar sem hún kallar forseta Íslands „gerpi“: