Erna Gísladóttir, forstjóri BL, verður á meðal gesta hjá Jóni G. í Viðskiptum á Hringbraut í kvöld.
Þau koma víða við í spjalli sínu. Hvernig var bílaárið 2018 og hverjar eru horfurnar á þessu ári? Hún er með tíu bílaumboð og ók á yfir 300 km. hraða á Formúlu 1 bíl í Frakklandi. Og einn af fyrstu bílunum sem þessi ókrýnda bíladrottning Íslands ók var Lada Sport jeppi. „Pabbi lét mig fá Löduna svo ég æki ekki hratt,“ segir hún meðal annars í bráðskemmtilegu viðtali við Jón G.
Stiklu úr þættinum er að finna hér:
Viðskipti með Jóni G. hefst klukkan 20:30 í kvöld.