Erna leitaði sér aðstoðar við kvíða á dögunum – Sálfræðiþjónusta allt of dýr

„Ég tók stórt skref um daginn og leitaði mér fagaðstoðar við kvíða,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir sem heldur úti Instagram-síðunni Ernuland.

Í nýrri færslu hvetur hún landsmenn til að skrifa undir áskorun þess efnis að ríkisstjórnin standi við að fullfjármagna niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu þó að frumvarp þess efnis hafi verið samþykkt fyrr á árinu.

Erna bendir á að allir geti lent í að þurfa að sækja sér faghjálp og segir hún sína sögu málinu til stuðnings. Hún segist hafa glímt við svefnleysi um nokkra hríð þegar líkami hennar tók upp á því að fara í svokallað „fight and flight mode“ á næturna. Vaknaði hún upp hverja einustu nótt í sex mánuði í ofsakvíðakasti sem lýsti sér þannig að hún vaknaði frosin, algjörlega lömuð og með trylltan hjartslátt.

Hún segist stundum hafa heyrt hljóð og vaknað í ópum svo eiginmaður hennar þurfti að vakna og halda utan um hana, ganga á hurðar og glugga og sannfæra hana um að hún væri örugg.

„Þetta er langur tími af svefnleysi....staðan var þannig að ég vissi vel að ég var örugg, en líkaminn man & eftir fyrri áföll er hann fljótari að færa sig yfir í varnarstöðu þegar eitthvað gerist, eins og í þessari aðstöðu, innbrot um miðja nótt. Það var nóg til þess að varnarkerfi líkamans tóku við og hugurinn var langt frá því að vera við stjórn. Eftir að ég var siðan byrjuð að detta niður í gólfið lömuð úr hræðslu hérna heima hjá mér við hið minnsta þrusk þá ákvað ég að sleppa tökunum & leita hjálpar.“

Hún segir skrefið að leita sér hjálpar vera erfitt og á hún einnig erfitt með að lýsa því hvernig það er að hafa svo ekki efni á aðstoðinni.

„Ég ætlaði að byrja í kvíðameðferð við áfallastreitu & skoða EMDR meðferð....en það er bara of dýrt & einnig þá verð ég bara að segja að það er alveg slatta þreytandi að þurfa að vera greiða sálfræðikostnað vegna þess að einhverjir menn kusu að brjóta á þér! Þessi kostnaður er ekki minn. Ég ákvað að þar sem það átti að niðurgreiða sálfræðikostnað eftir áramót þá skyldi ég fara á kvíðalyf & meðferðina strax þegar niðurgreiðslan væri komin í gegn. Núna á svo að svíkja það?“

Erna segir að sálfræðiaðstoð eigi ekki að vera lúxusvara heldur mannréttindi.

„Ég er skrefinu nær að senda einfaldlega reikning á þessa menn sem eru ástæðan fyrir því að ég þarf þessa hjálp, þessa rándýru hjálp.....HVET ALLA TIL ÞESS AÐ SKRIFA UNDIR!! Það geta allir lent í því að þurfa sækja sér faghjálp & því kemur þetta okkur öllum við! Sálfræðiþjónusta getur bjargað lífum & það eiga allir að faá tækifæri á faghjálp.“

Hægt er að leggja undirskriftasöfnuninni lið hér.