Erna glímir við dularfullt vandamál: „Síminn minn hringir stundum sjálfur í fólk“

Erna Indriðadóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri vefsins Lifðu núna, skrifaði skemmtilegan pistil á vefinn í gær. Þar lýsti hún einkennilegu vandamáli sem hún glímir við því síminn hennar á það stundum til að hringja sjálfur í fólk án þess að hún komi nærri.

„Ég sver það! Ég hef kannski lagt símann á borð og vikið mér frá, og viti menn, eftir nokkrar mínútur hringir hann í einhvern úti í bæ alveg án þess að mannshöndin komi þar nokkurs staðar nærri. Ég reyni auðvitað að stöðva þetta eins fljótt og ég get, en það tekst ekki alltaf,“ segir Erna í pistlinum.

Hún bætir við að stundum verði þetta til þess að hún fari að spjalla við fólk úti í bæ, jafnvel einhvern sem hún hefur ekki heyrt í lengi. „Stundum hef ég haft áhyggjur af að síminn fari að hringja í einhvern um miðja nótt, þegar ég er steinsofandi á mitt græna eyra.“

Vandamálið virðist ekki bara bundið við hana því hún hefur sjálf lent í því að vinir hennar hringja „óvart“ í hana. Til marks um það birtir hún skemmtilegt SMS sem hún fékk eitt sinn frá kunningja sínum, strangheiðarlegum manni.

„Hann skrifaði: Klukkan 4:52 í nótt virðist sími minn hafa hringt í þinn síma. Mér er gjörsamlega útilokað að skilja hvernig þetta hefur gerst. Eina skýringin er, þó fráleit og fjarstæðukennd sé, að ég hafi rekið mig í símann og hann hafi við það af einhverjum ástæðum hringt, og af einhverjum ástæðum til þín. Að öðru leyti finnst mér þetta mjög dapurlegt og erfitt að þurfa að endurreisa mannorð mitt þegar svona gerist. Ég bið þig innilega að fyrirgefa þetta. Þú mátt treysta því að ég er ekki sú auma manntegund sem hringir í konur á dimmum nóttum. Lifðu heil … og svo skrifaði hann fullt nafn og starfsheiti undir.“

Í pistli sínum, sem er þrælskemmtilegur, skrifar Erna einnig um önnur snjallsímavandamál sem margir eflaust kannast við. Lifðu núna er vefur sem var opnaður árið 2014 og er markmið hans að gera líf og störf þeirra sem komnir eru um og yfir miðjan aldur sýnilegri en þau eru.

Pistil hennar má lesa í heild sinni hér.