„Nú má gera ráð fyrir að garðeigendur fari að huga að garðaúðun til að verja gróðurinn fyrir atgangi svokallaðra meindýra. Oft hefur meira kapp en forsjá þar ráðið för,“ segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur sem heldur úti Facebook-síðunni Heimur smádýranna.
Í nýrri færslu skrifar hann um býflugurnar sem komnar eru á stjá. Erling bendir á að þær hafi átt í vök að verjast á undanförnum árum víða um lönd. „Er það mál hið versta og hefur skýringa verið leitað dyrum og dyngjum,“ segir hann.
Hann vísar í umfjöllun Morgunblaðsins á dögunum þess efnis að býflugurnar hafi rétt úr kútnum í kjölfar COVID-19 faraldursins. Það sé sönnun þess að sumt illt geti einnig leitt til góðs en í umfjöllun Morgunblaðsins var vísað í viðtal AFP-fréttaveitunnar við albanskan býflugnabónda sem sagði að býflugnarækt og hunangsframleiðsla hefði aldrei staðið traustari fótum en nú.
Flugurnar séu nú lausar við skordýraeitur sem notað er í annarri framleiðslu. Þá hafi faraldurinn minnkað mengun og aukið kyrrðina sem kemur býflugunum til góða.
Erling hvetur fólk til að gæta hófs þegar eitrað er fyrir smádýrunum sem fara á kreik þegar sólin hækkar á lofti.
„Maður heyrir talað um að boðið sé upp á eitrun fyrir hinu og þessu, s.s. möðkum, blaðlúsum, köngulóm. Hafa skal í huga að engin eitrun er sértæk. Eitrun verður alltaf almenn, drepur allt sem fyrir verður og rústar eðlilegum gangi þess vistkerfis sem garðurinn er. Að úða garðinn sinn eitri á ekki að verða sjálfsagður gjörningur.“