Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í morgun úr gildi úrskurð endurupptökunefndar í máli Erlu Bolladóttur. Mál hennar fer því til nýrrar meðferðar og úrskurðar um hvort skilyrði eru fyrir því að endurupptaka hennar þátt í Geirfinnsmálinu.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Erla var mætt til að hlýða á dómsuppsögu og gat hún ekki leynt ánægju sinni þegar dómurinn var kveðinn upp. Hrópaði hún „Jess“ um leið og niðurstaðan lá fyrir.
Endurupptökunefnd synjaði Erlu um endurupptöku á hennar þætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í febrúar 2017. Hún er sú eina af þeim sex einstaklingum sem hlutu dóma í Guðmundar- og Geirfinnsmálum árið 1980, sem ekki hefur fengið mál sitt endurupptekið.
Erla var dæmd í Hæstarétti árið 1980 fyrir rangar sakargiftir með því að hafa sammælst um það með Kristjáni Viðari Júlíussyni og Sævari Marínó Ciesielski að þau myndu bera sakir á fjóra menn, kennda við skemmtistaðinn Klúbbinn, færu spjótin að beinast að þeim sjálfum vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar.
Erla var ákærð í máli Geirfinns Einarssonar, fyrir eftirfarandi hlutdeild að manndrápi en var sýknuð í Hæstarétti.
Aðalmeðferð málsins fór fram í nóvember þar sem Erla sjálf gaf ítarlega skýrslu auk átta annarra vitna.