Erfitt hafi reynst að fá svör frá stórnvöldum um bóluefni

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar og for­maður vel­ferðar­nefndar Al­þingis, vill fá skýr svör frá stjórn­völdum um stöðu bólu­efna­mála en hún vill vita hvort Ís­land fylgi að­eins Evrópu­sam­bandinu eftir varðandi kaup á bólu­efni gegn CO­VID-19.

Í sam­tali við mbl.is segir Helga Vala að hún hafi mikla trú á ESB en hún vilji fá að vita hvort Ís­lendingar séu sjálf í við­ræðum, líkt og mörg önnur ríki eru að gera.

Hún segir að illa hafi gengið að fá svör frá yfir­völdum í þeim málum og þegar svör hafi komið hafi þau verið mis­vísandi. Hún greinir frá því að óskað hafi verið eftir því að fundað yrði milli jóla og ný­árs en að því hafi verið hafnað.

„En við fengum það lof­orð frá heil­brigðis­ráð­herra að vel­gerðar­nefnd fengi minnis­blað í hendurnar um þessi mál. Ég vænti þess að í því minnis­blaði séu skýr svör um ferlið allt og stöðuna fram­undan,“ sagði Helga Vala í sam­tali við mbl.is en hún væntir þess að minnis­blaðið berist í næstu viku.

„Þó að veiran sé ó­fyrir­sjáan­leg þá verðum við að vita hvað stjórn­völd eru að gera.“