Er tíma­bært að ráðast í til­slakanir? „Ekki viljum við fjórðu bylgjuna“ - Bubbi setur fram ósk

Mjög skiptar skoðanir eru uppi um það hvort tíma­bært sé að ráðast í til­slakanir innan­lands vegna CO­VID-19. Þór­ólfur Guðna­son er með í smíðum til­slakanir á að­gerðum sem hann hyggst skila til Svan­dísar Svavars­dóttur síðar í vikunni.

CO­VID-19 til­fellum hefur fækkað hratt hér á landi undan­farnar vikur og greindist til að mynda ekkert innan­lands­smit hér um helgina. Á­fram greinist þó nokkur fjöldi smita á landa­mærunum og segir Þór­ólfur að harðar að­gerðir verði á­fram í gildi þar uns hjarðó­næmi næst.

Kristinn Hrafns­son, fjöl­miðla­maður og rit­stjóri Wiki­leaks, gerir væntan­legar til­slakanir að um­tals­efni á Face­book-síðu sinni og segist hann vera í dag­legu vinnu­sam­bandi við starfs­fé­laga í löndum þar sem ömur­legt á­stand ríkir vegna CO­VID-19.

„Það liggur við að maður sleppi því að geta þess að maður skjótist í sund næstum dag­lega, hafi brugðið sér á skíði, hitti fjöl­skylduna í boðum og setjist yfir kaffi­bolla eða snæðingi á veitinga­stöðum. Ís­lendingar eru í ó­trú­lega öfunds­verðri stöðu,“ segir hann.

Sjálfur er hann þeirrar skoðunar að skyn­sam­legast væri að halda ó­breyttu á­standi fram til 17. febrúar næst­komandi. Þá væri hugsan­lega hægt að af­nema allar tak­markanir innan­lands – ef við höldum á­fram á sömu braut.

„Held einnig að það sé vert að horfa fram í tímann og stefna að því að opna landið í sumar, segjum frá 1. júní. Þó að það verði ein­hverjar tafir í bólu­setningum liggur fyrir að í sumar­byrjun verði búið að bólu­setja alla eldri borgara og þá sem eru í mestri á­hættu. Já, ég veit að það eru dæmi um að yngra fólk veikist býsna heiftar­lega og séu jafn­vel lengi að ná sér en það er ekki skyn­sam­legt að láta þær á­hyggjur vega þyngra en skaðinn af tak­mörkunum.“

Hring­braut sagði í gær frá stöðu­upp­færslu Ó­línu Þor­varðar­dóttur, fyrr­verandi þing­konu, þar sem hún lýsti harðri and­stöðu við að flýta til­slökunum.

„Eigum við ekki bara að halda þetta út, eins og um var talað, og klára dæmið? Það hjálpar ekki að vekja væntingar sem svo verður kannski ekki hægt að standa við. Hver er að biðja um að til­slökunum sé flýtt? Ég þekki engan. Klárum þetta bara eftir planinu,“ sagði hún.

Margir tóku undir með Ó­línu en ein­hverjir lýstu því að nauð­syn­legt væri að halda á­fram öflugu eftir­liti við landa­mærin þaðan sem smitin koma. „Innan­lands getum við farið að njóta meira lífsins-en samt með gætni. Ný Sjá­lendingar gerðu það með góðu lífi innan­lands en eru samt á tánum við flugið,“ segir Sæ­var Helga­son undir færslu Ó­línu. Ó­lína svarar á móti að það verði engin gætni ef slakað verður of snemma á.

„Það sýndi sig í sumar. Bara klára þetta og vera ekki að spila með væntingar fólks. Þetta er spurning um þrjár vikur til við­bótar,“ sagði Ó­lína.

Tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens lagði einnig orð í belg undir færslu Ó­línu og sagðist þrá að spila og vinna fyrir launum. „200 manns. Bið ekki um meira,“ sagði hann. Ó­lína svaraði Bubba og í­trekaði að þrjár vikur séu út­haldið sem við þurfum. „Ekki viljum við fjórðu bylgjuna,“ sagði hún.

Við­tal Stöðvar 2 í síðustu viku við Rúnu Lind Kuru Kristjóns­dóttur, ís­lenska konu sem er bú­sett á Nýja-Sjá­landi, vakti tals­verða at­hygli. Þar eru strangar reglur í gildi á landa­mærunum og þurfa allir sem koma til landsins að fara í tveggja vikna sótt­kví í far­sótta­húsi. Þar gengur lífið sinn vana­gang, engin tveggja metra regla er í gildi, engin grímu­skylda og allir við­burðir geta farið fram eins og áður en far­aldurinn fór af stað. Þar, eins og hér nú um stundir, er fjöldi innan­lands­smita í al­gjöru lág­marki.

Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, deildi um­fjölluninni á sinni Face­book-síðu og sagði: „Alltaf hefði ég valið þessa sótt­varnar­leið. En það vitið þið frá upp­hafi far­aldursins. Ég hef aldrei dregið dul á það.“