Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, verður 98 ára í sumar en lætur engan bilbug á sér finna. Hann er nokkuð virkur á Facebook þar sem hann skrifar meðal annars um loftslagsmál og það sem á daga hans drífur. Þá stundar hann líkamsrækt á hverjum degi.
Albert Eiríksson, tengdasonur Páls og maður Bergþórs Pálssonar, heldur úti hinni skemmtilegu síðu Alberteldar.com. Í pistli sem hann skrifaði í gær kom hann inn á mögulegar ástæður þess að Páll er svona hraustur þrátt fyrir að hann nálgist aldarafmælið óðfluga.
Í færslunni birti hann mynd af Páli þar sem hann situr með hádegisverðinn fyrir framan sig. Svo vill til að hann borðar alltaf það sama í hádeginu og hefur raunar gert það í áratugi: feitur fiskur (helst lax), grænmeti, kartöflur, smjör, tómatsósa og rúgbrauðssneið með. Hann sýður fiskinn í örlitlu vatni og hellir því svo yfir fiskinn á disknum.
„Gæti hollur hádegisverður, góð gen, dagleg hreyfingu og eldmóður útskýrt góða heilsu Páls og langlífi? Hvern morgun byrjar hann á því að gera leikfimisæfingar og þegar sólin er hæst á lofti fer Páll í um 20 mín. göngutúr með stafi,“ segir Albert í færslunni.