Guðjón Valur Sigurðsson tilkynnti í dag að hann væri hættur í handbolta eftir ótrúlega farsælan feril. Guðjón Valur er ekki bara einn besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi heldur er hann án nokkurs vafa einn besti hornamaður handboltasögunnar.
Guðjón skoraði mörg eftirminnileg mörk á ferli sínum en eitt það eftirminnilegasta er án efa mark sem hann skoraði í undanúrslitum Íslandsmótsins í apríl 2001, fyrir nánast réttum 19 árum.
Guðjón Valur var þá á mála hjá KA en liðið lék þá í KA-heimilinu oddaleik gegn Aftureldingu. Leikurinn var spennandi frá upphafi til enda, var framlengdur tvisvar og endaði í bráðabana.
Undir lok fyrri framlengingar fékk KA aukakast þegar leiktíminn var runninn út. Guðjón Valur tók aukakastið með varnarmúr Aftureldingar fyrir framan sig. Það á í rauninni að vera ómögulegt að skora úr slíku færi en boltinn söng í netinu eftir að Guðjón Valur skaut í stöng og inn. Hann jafnaði metin í 24-24. Leikurinn fór aftur í framlengingu en á endanum vann KA magnaðan sigur, 29-28.
Það þarf vart að taka það fram að Guðjón Valur var markahæstur á vellinum með 13 mörk.
Akureyringurinn Vilhelm Anton Jónsson, stundum kallaður Villi naglbítur, rifjaði upp markið á Facebook-síðu sinni í kvöld og kastaði um leið góðri kveðju á landsliðsfyrirliðann fyrrverandi.
„Hann er ekki bara uppáhalds íþróttamaðurinn minn, hann er líka fyrirmyndar einstaklingur. Hann bætti íþróttina! Takk fyrir alla gleðina, innblásturinn og tilfinningarússíbanana. Læt fylgja með myndskeið af uppáhalds kastinu mínu, svona á að sleppa bolta!“
Mark Guðjóns má sjá á YouTube