Einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni er mál málanna hjá Jóni G. í kvöld. Hann ræðir við Hjálmar Þorsteinsson, lækni hjá Klíníkinni, og Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, frkvstj. Köru Connect. Erum við með of mörg egg í sömu körfunni með stærð og fyrirferð Landspítalans? Kara Connect býður snjalla veflausn sem slegið hefur m.a. í gegn sem fjarheilbrigðisþjónusta. Þorbjörg dvelur í Danmörku og er vel við hæfi að ræða við hana á fjarfundi.
Þeir Jón G. og Hjálmar ræða um einkareksturinn í heilbrigðisþjónustunni og hvernig einkastofurnar hafa létt undir með Landspítalanum í skurðaðgerðum og gætu hjálpað spítalanum enn meira.
Er Landspítalinn orðinn of stór eining og sýnir COVID-kreppan ekki einmitt að með svo fyrirferðamikið sjúkrahús séu við með of mörg egg í sömu körfunni. Starfsmenn spítalans sýkjast auðvitað eins og aðrir, bráðaaðgerðin núna er vegna COVID og aðrar aðgerðir, eins og liðskiptaaðgerðir, eru settar í bið.
Stóra spurningin er hvort heilbrigðisþjónustan hverfist ekki orðið of mikið um Landspítalannn og hvort hann sér tregur til að gefa frá sér aðgerðir til einkastofanna, en Klíníkin er með síst minni tækni en Landspítalinn og býr yfir góðri legudeild.
Og þá er það spurningin um hvort ekki sé órökrétt að fólk þurfi að bíða í allt að tvö ár eftir liðskiptaaðgerðum? Hvers konar lífsgæði eru það? Sjúkratryggingar eru kaupendur að þjónustunni og hljóta að geta valið um það hvort þær kaupi liðskiptaaðgerðir af Landspítalanum og/eða Klíníkinni.
Sjúkratryggingar tryggja almenna heilbrigðisþjónustu - og allir eru sammála um að ríkið eigi að tryggja þegnum sínum þá þjónustu - en það er ekki þar með sagt að ríkið þurfi að gera allt sjálft; þurfi sjálft að framkvæma aðgerðirnar. Hvers vegna ekki að útvista og létta undir með Landspítalanum sem sýnir sig núna í COVID að vera of stór eining og biðlistar lengjast þar sem COVID er bráðaaðgerð spítalans um þessar mundir.
Hörkuþáttur í kvöld á Hringbraut. Kl. 20:30.