Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að jarðskjálftahrinan á suðvesturhorni landsins í dag geti verið fyrirboði um eldgos. „Þetta er á virku eldfjallasvæði og þá er alltaf möguleiki á að þetta endi með eldgosi,“ segir Ármann í viðtali við Fréttablaðið.
Jarðskjálftahrina hefur riðið yfir suðvesturhorn landsins í morgun og var stærsti skjálftinn í þeirri hrinu 5,7. Upptök hans voru 3,3 kílómetra suðsuðvestur af Keili á Reykjanesi. Þegar jarðskjálftahrinur eru annars vegar fer umræðan um hugsanleg eldgos ávallt af stað og er sá möguleiki fyrir hendi ef marka má Ármann sem er einn okkar virtasti vísindamaður.
Ármann segir við Fréttablaðið að fyrst og fremst sé um að ræða mikla spennulosun en gos sé alltaf möguleiki.
„Þetta eru stórir skjálftar, þar sem það er tvöfalt spennusvið á Reykjanesinu,“ segir hann og bætir við: „Með skjálftunum er verið losa um þessa skáspennu og þegar það er búið þá eru aðstæður orðnar réttar til að opna skorpuna og hleypa einhverju upp.“
Hann segir að gos þurfi ekki mikinn fyrirvara og jarðskorpan á svæðinu sé ekki mjög þykk. Telur Ármann að ekki meira en fimmtán mínútna fyrirvari sé vegna mögulegs eldgoss.
„Við höfum ekki meiri fyrirvara en það á þessu svæði, aðeins nokkrar mínútur.“
Nánar er rætt við Ármann á vef Fréttablaðsins.