„Það kom örlítið skarð í ríkiseinokun í vikunni, þegar íslenskum áfengisframleiðendum var leyft að selja beint til einstaklinga, í stað þess að selja bara í gegn um áfengissölu ríkisins og veitingastaði,“ skrifar Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur og starfsmaður Viðreisnar, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
„Þetta er ekki fyrsta skarðið í einokunina,“ skrifar Svanborg og bætir við að netsölur séu farnar að senda áfengi heim, og það sé jafnvel hægt að kaupa áfengi á sunnudögum, fyrir þau sem langar í vín með sunnudagsgrillinu en gleymdu að fara í Vínbúðina. „Það er hægt að skoða mismunandi verð á sömu vöru og velja mestu þjónustuna og/eða lægsta verðið,“ skrifar hún.
Svanborg segir rök þeirra sem vilja halda einokuninni og helst læsa alla sölu áfengis þar inni séu að aukið aðgengi auki áfengisvandann á Íslandi. „Eins og viljinn til að drekka áfengi dofni við það að það sé erfitt að nálgast næstu Vínbúð,“ skrifar hún.
Hún spyr sig hvort við höfum verið í blakkáti síðustu tvo áratugi 20. aldar. Hún segir aðgengið hafa verið erfitt en drykkjumenningin var sterk og ekkert sem stöðvaði hana.
Nú er aðgengið auðveldara en menningin er með mun veikari prómill. Við skiptum út vodkanu fyrir rauðvín. Unglingarnir drekka minna. Þrátt fyrir aukið aðgengi,“ skrifar Svanborg og spyr:
„Er ekki kominn tími til að til að treysta fullorðnu fólki fyrir eigin innkaupum?“