„Er ekki kominn tími að Sjálf­stæðis­flokkurinn fari að gera eitt­hvað annað en að sitja að stjórn landsins?“

Ágúst Ólafur Ágústs­son furðar sig á við­brögðunum sem til­laga hans um fjölgun opin­berra starfa hefur fengið.

„Þegar ég stakk upp á þeirri hug­mynd að við ættum m.a. að fjölga hjúkrunar­fræðingum, kennurum, sjúkra­liðum, barna­verndar­fólki, skóla­liðum, löggum og öðrum opin­berum starfs­mönnum urðu Sjálf­stæðis­menn alveg dýr­vit­lausir,“ segir Ágúst í færslu á Face­book-síðu sinni.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði það „ein­hverja verstu hug­mynd sem hann hefði heyrt“ að fjölga opin­berum störfum, en um­mælin féllu þegar verið var að ræða fjár­auka­lög á Al­þingi og nýjan að­gerða­pakka ríkis­stjórnarinnar vegna CO­VID-19 far­aldursins.

Ágúst Ólafur Ágústs­son sagði það mikil­vægt að búa til störf í því á­standi sem nú ríkir og nefndi hann opin­ber störf í því sam­hengi. Bjarna leist ekki beint vel á þessa hug­mynd og kæfði hana í fæðingu.

Fjallað er um til­löguna einnig í Stak­steinum Morgun­blaðsins í dag og þar tekur höfundur undir að hug­myndin sé slæm.

„Hug­myndin um fjölgun opin­berra starfa til að koma okkur út úr þessu á­standi er vissu­lega ein­hver sú versta sem fram hefur komið. Það er ekki síst vegna þess að opin­ber störf eru orðin allt of mörg. Þeim verður að fækka til að veita at­vinnu­lífinu og þar með verð­mæta­sköpuninni eðli­legt svig­rúm.“

Ágúst Ólafur furðar sig á þessum skrifum og segir:

„En það er ekki nóg að þeim fannst þetta vera “versta hug­mynd” allra tíma heldur stingur þeirra raun­veru­legi leið­togi nú bein­línis upp á, að við ættum frekar að fara reka opin­bera starfs­menn. Er ekki kominn tími að Sjálf­stæðis­flokkurinn fari að gera eitt­hvað annað en að sitja að stjórn landsins?“