Í vikulegum pistli sínum í Fréttablaðinu í dag, „Í vikulokin“, segir Ólafur Arnarson ríkisstjórnina hafa sýnt kjósendum og sjálfu lýðræðinu óvirðingu með því að draga kosningar fram á haust í stað þess að láta kjósa í vor. Hann dregur þá ályktun að seinagangur á störfum undirbúningsnefndarinnar sé til kominn vegna þess að Birgi Ármannssyni hafi verið falið að tefja málið vegna vandræðagangs flokksformanna ríkisstjórnarflokkanna við að koma saman nýjum stjórnarsáttmála.
Ólafur bendir á að þing hefur nú ekki komið saman í 138 daga en á sama tíma hafi ítrekað komið upp neyðarástand í heilbrigðiskerfinu vegna Covid og þingmenn fái nú innan við mánuð til að samþykkja fjárlög sem ókjörnir embættismenn eigi veg og vanda af. Á sama tíma hafi ríkisstjórnin dælt út almannafé og ríkisskuldir hafi hækkað um 600 milljarða. Spyr hann hvort ekki megi fækka þingmönnum verulega fyrst þeir séu svona óþarfir. Fyrirsögn pistilsins er: „Óvirðing við lýðræðið eða eru þingmenn óþarfir?“. Hér á eftir fer hann í heild:
„Alþingi hefur verið látið sitja aðgerðalaust síðan 5. júli, eða í 138 daga. Þing hefur ekki getað komið saman vegna klúðurs og hroka af hálfu yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis. Hringavitleysan með talninguna í Borgarnesi nær út yfir allan þjófabálk. Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar hamast við að moka sandi í botnlausa tunnu en botninn er suður í Borgarfirði eins og hjá Bakkabræðrum.
Vart verður önnur ályktun dregin en að Birgi Ármannssyni hafi verið falið að tefja málið vegna þess að formönnum stjórnarflokkanna hefur ekkert gengið við að koma saman nýjum stjórnarsáttmála. Fær hann jafnvel forsetastól á Alþingi að launum?
Á meðan er allt látið reka á reiðanum varðandi stjórn landsins þrátt fyrir síendurtekið neyðarástand í heilbrigðiskerfinu vegna Covid 19 og þrátt fyrir að nú blasi við að kjörnir fulltrúar fólksins í landinu fá vart að kynna sér fjárlagafrumvarp, samið af ókjörnum embættismönnum, áður en þeir greiða um það atkvæði. Ljóst er að þingmenn fá innan við mánuð til að ganga frá fjárlögum. Ríkisskuldir hafa hækkað um 600 milljarða. Á ekkert að fjalla um það?
Ríkisstjórnin sýndi kjósendum og sjálfu lýðræðinu fullkomið virðingarleysi með því að teygja kosningar fram á haust í stað þess að kosið yrði í vor og misnotaði aðstöðu sína til að moka út ríkispeningum í stað þess að bregðast við málum sem á brenna.
Alþingi, æðstu stofnun þjóðarinnar, er haldið á hliðarlínunni og frá störfum. Það er ófært um að sinna eftirlitshlutverki sínu og stefnumótun. Mætti ekki fækka þingmönnum verulega fyrst þeir eru svo óþarfir að landið getur verið án þjóðþings mánuðum og jafnvel misserum saman og enginn segir neitt?“