Enn og aftur var heppnin með Ís­lendingi - Nú í Eurojack­pot

Einn heppinn Ís­lendingur vann 2. vinninginn í Eurojack­pot í kvöld. Þetta kemur fram í til­kynningu.

Um er að ræða 39.598.840 milljónir. Hann var seldur hér á landi, þrisvar í Þýska­landi, Spáni, Sví­þjóð og Finn­landi.

Enginn vann 1. vinning, en hann nemur rúmum þremur milljörðum króna. Fram kemur í til­kynningu að ís­lenski vinnings­hafinn hafi keypt miðann sinn í Iceland, Engi­hjalla í Kópa­vogi.

Ekki er langt síðan að annar heppinn Ís­lendingur vann hrika­lega stóran pott í Víkinglottó. Sá fékk vinninginn greiddan út í dag.