Enn í haldi eftir and­lát Ís­lendingsins

Karl­maður á fer­tugs­aldri er enn í haldi í Kaup­manna­höfn en hann er grunaður um í­kveikju í hús­næði þar í síðasta mánuði þar sem Ís­lendingur lést. Mbl.is greinir frá.

Þar segir að danska lög­reglan verst allra frétta vegna málsins. Rann­sókn þess er enn í gangi. Maðurinn er 39 ára gamall.

Ís­lendingurinn lést að­fara­nótt þriðju­dags 9. nóvember eftir að kviknað hafði í smá­hýsi á eyjunni Amager sem til­heyrir Kaup­manna­höfn.