Í gær greindust um 180 Covid-smit innanlands og er það annan daginn í röð sem metfjöldi greinist. Þau voru 168 daginn áður, sem var þá mesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum degi.
Þetta hefur Vísir eftir Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni en upplýsingavefur almannavarna, covid.is, hefur ekki verið uppfærður enn. Í samtali við Fréttablaðið sagði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn að smitin yrðu fleiri en í gær.
Á sjúkrahúsi eru fimmtán og fækkar þrjá milli daga. Á gjörgæslu eru þrír, allir í öndunarvél. Fimm inniliggjandi eru óbólusettir og meðalaldur þeirra sem liggja á Landspítala er 59 ár.
Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti og eru fjöldatakmarkanir nú 500 manns í stað 2000 en með hraðprófum er heimilt að halda viðburði fyrir 1.500 manns. Nú þurfa veitinga- og skemmtistaðir að hætta að hleypa inn klukkan ellefu og þurfa allir að fara út fyrir miðnætti.