Einn einstaklingur lést á Landspítalanum síðasta sólarhring vegna COVID-19. Þetta kemur fram í frétt sem birtist á vef Landspítalans í morgun. Aðstandendum viðkomandi er vottuð samúð.
Frekari upplýsingar eru ekki veittar.
Þetta var tuttugasta og áttunda andlátið hér á landi vegna COVID-19 en veiran greindist fyrst hér á landi í lok febrúarmánaðar. Átján einstaklingar hafa látist í þriðju bylgjunni sem fór af stað í haust.
Sjö smit greindust hér á landi á sunnudag, samkvæmt tölum sem birtar voru í gær, og voru allir þeirra sem greindust í sóttkví. Von er á nýjum tölum um fjölda smita sem greindist í gær klukkan 11. Alls voru 36 einstaklingar á sjúkrahúsi í gær, þar af þrír á gjörgæslu.