Enn eitt and­látið hér á landi vegna CO­VID-19

Einn sjúk­lingur lést síðasta sólar­hring á Land­spítalanum vegna CO­VID-19. Frá þessu er greint á vef Land­spítalans og er að­stand­endum við­komandi vottuð sam­úð.

Frekari upp­lýsingar koma ekki fram, til dæmis um aldur við­komandi eða hvort hann hafi verið á gjör­gæslu­deild fyrir and­látið.

Tuttugu og sjö ein­staklingar hafa nú látið lífið í far­aldrinum til þessa hér á landi, þar af sau­tján í kjöl­far hinnar svo­kölluðu þriðju bylgju far­aldursins.

Sam­kvæmt upp­lýsingum á vef CO­VID.is er nú 41 ein­stak­lingur á sjúkra­húsi og 2 á gjör­gæslu.