Fyrir liggur að engar stórhvalaveiðar verða á Íslandi í ár. Fram kom í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut sl. mánudag hjá Sigursteini Mássyni hvalfriðunarsinna að Kristján Loftsson hjá Hval hf væri eini maðurinn í heiminum sem veiddi stórhveli. Í Morgunblaðinu í dag segir Kristján að ekki gengi að koma afurðum Hvals á markað. Í Kvikunni sagði Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, að ekki mætti kúga Íslendinga til uppgjafar, hvorki í þessum veiðum né öðrum.
Fram kemur á forsíðu Moggans að Hvalur hafi mætt endalausum hindrunum að koma langreyðakjöti á markað í Japan. Japansmarkaður sé aðalmarkaður félagsins og því sé sjálfhætt. Þá kemur fram að ef framkvæmdastjóri Hvals hefði vitað í hvað stefndi í Japan vegna þess sem Kristján Loftsson kallar “hindranir” og úreltar efnagreiningar Japana á hvalkjötinu, hefði Hvalur ekki byrjað aftur árið 2009 að veiða stórhveli.
Í Kvikunni var fjallað um þá diplómatísku óánægju sem víða hefur orðið vegna hvalveiðða Íslendinga á alþjóðavísu. Ferðaþjónustan hefur sett mikinn þrýsting á að veiðunum verði hætt, enda ógni þær hvalaskoðun. Þá hefur Íslandi verið hótað viðskiptaþvingunum.
Hvalur veiddi 155 langreyðar á vertíðinni í fyrrasumar.