Play hyggst ekki hleypa neinum inn í sínar vélar án neikvæðs COVID-19 prófs frá og með fimmtudeginum 29. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.
Segir þar að ákvörðunin sé tekin með öryggi farþega og áhafna að leiðarljósi og í samræmi við reglugerð heilbrigðisyfirvalda sem tók gildi 27. júlí og kveður á um að farþegar þurfi að verða sér úti um vottorð um neikvætt COVID-19 próf áður en haldið er til Íslands.
Play mun bóka þá farþega sem ekki geta framvísað neikvæðu COVID-19 prófi í næsta flug félagsins frá sama áfangastað þeim að kostnaðarlausu, enda framvísi þeir þá neikvæðu prófi.
„Með þessari tilhögun er PLAY ekki að bera brigður á rétt Íslendinga til að snúa til síns heima heldur þurfa þeir, sem ekki uppfylla reglur stjórnvalda, að sæta tímabundinni röskun í ljósi aðstæðna. Þá er ákvörðunin tekin í samræmi við skilmála PLAY þar sem meðal annars er kveðið á um heimild félagsins til að neita að fljúga með farþega sé það nauðsynlegt til að framfylgja lögum, reglugerðum eða tilmælum stjórnvalda eða til að tryggja öryggi annarra,“ segir í tilkynningunni.
Segir að það sé jafnramt mat Play að ef flugrekandi framfylgi ekki relgum stjórnvalda, með þvíað hleypa fólki sem ekki framvísar COVID-19 prófi á flugvelli um borð í flug til landsins, missi reglurnar marks.
„Það er skylda okkar að tryggja öryggi farþega og áhafna og það kemur ekki til greina að PLAY hleypi fólki um borð án þess að reyna að tryggja að það sé ekki með COVID-19. Þetta er tímabundin ráðstöfnun í þágu öryggis,“ segir Birgir Jónsson forstjóri PLAY.