Engin kyn­ferðis­brota­mál það sem af er Þjóð­há­tíð

Tals­verður erill var hjá lög­reglunni í Vest­manna­eyjum í gær og nótt, þrátt fyrir það hafa engin kyn­ferðis­brota­mál verið til­kynnt lög­reglunni það sem af er helgi.

Sjö líkams­á­rásir voru skráðar hjá lög­reglu eftir nóttina en í öllum til­fellum var um minni­háttar líkams­á­rás að ræða.

Sjö voru vistaðir í fanga­geymslu, fjórir vegna ölvunar­á­stands og þrír í tengslum við líkams­á­rásar­mál.

Sjö minni­háttar fíkni­efna­mál voru skráð hjá lög­reglu síðasta sólar­hringinn.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Grímur Her­geirs­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum nóttin í nótt hafi verið eril­samari en þær tvær á undan.

„Í nótt var þetta að­eins meira eins og við er að búast þegar svona gríðar­­legur fjöldi kemur saman og er að skemmta sér,“ segir hann.

Grímur segir betri bragur vera á þessari Þjóð­há­tíð en oft hefur verið. „Þetta er svo sem ekki búið en er búið að fara á­gæt­lega vel fram,“ segir hann.