Engin greinst utan sóttkvíar þrjá daga í röð: Flest smitin í gær á Sauðárkróki

Fimm manns greindust með veiruna innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví við greiningu en um er að ræða þriðja daginn í röð sem enginn greinist utan sóttkvíar.

Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, greinir frá því í samtali við mbl.is að af þeim smitum sem greindust í gær hafi fimm verið á Sauðárkróki. Tvö smit greindust á föstudag og voru þau einni á Sauðárkróki.

Lögreglan greindi frá því í gær að sextán væru í einangrun með virkt smit og með tölum gærdagsins má gera ráð fyrir að þeir séu nú 20 en lögreglan hefur ekki enn birt þær upplýsingar. Mikil fækkun var í sóttkví milli daga en þegar mest á lét voru nokkur hundruð manns í sóttkví.

Smitin sem um ræðir tengjast hópsmiti sem kom upp um síðustu helgi og eftir að það kom upp var ákveðið að framlengja hertar aðgerðir í Skagafirði og Akrahrepp en tilslakanir voru gerðar annars staðar á landinu síðastliðinn mánudag.

Ákveðið var að framlengja ekki aðgerðirnar enn frekar og því verður takmörkunum á svæðinu aflétt á miðnætti í kvöld. Stefán Vagn segir í samtali við mbl.is að nú stefni allt í eðlilegt horf. „Það er okkar von að við séum komin með yfirhöndina,“

„Samstaðan var gríðarleg og samtakamátturinn mikill að gera þetta vel og kveða niður hratt og örugglega,“ sagði Stefán.

Heimasíðan covid.is er ekki uppfærð um helgar en hægt verður að nálgast frekari upplýsingar um stöðu COVID-19 hér á landi þegar síðan verður uppfærð á morgun.