Ekki verður gert ráð fyrir bílastæðum við Fossvogslaug en viljayfirlýsing um laugina hefur verið undirrituð af Reykjavík og Kópavogi. Aðeins verða bílastæði fyrir fatlaða og aðföng.
Fjallað er um þetta í Fréttablaðinu í dag.
Laugin verður byggð samkvæmt grænum stöðlum og mun laugin einkum þjóna gangandi og hjólandi gestum. Þeir sem hyggjast koma akandi þurfa að finna bílastæði annars staðar, til dæmis við skólabyggingar eða í Fagralundi þaðan sem hægt er að ganga.
Eftir á að ákveða nákvæma staðsetningu laugarinnar en næsta skref á dagskrá er að breyta aðalskipulagi og ráðast í hönnunar- og skipulagssamkeppni um hentugustu staðsetninguna.