Viðskiptavinir sem lentu í veseni með netstreymi brekkusöngsins um verslunarmannahelgina munu ekki fá endurgreitt en fjölmargir voru ósáttir við að streymið skildi bila um kvöldið og „lagga.“
„Það er ógeðslega pirrandi fyrir borgandi kúnna að lenda í þessu en sem betur fer tóku langflestir þessu vel,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, í samtali við mbl.is um það bil 15 prósent áhorfenda horfðu á viðburðinn í streymi og lentu í vandræðum.
„Þrátt fyrir endalausar prófanir fyrr um daginn þar sem allt var 100% voru truflanir þegar upphitun byrjaði klukkan 21. Höktið var verst í svona 15 mínútur en klukkan 21.30 var búið að laga þetta og hélst straumurinn góður út tónleikana. Brekkusöngurinn sjálfur hófst klukkan 23 og lauk um miðnætti,“ segir Ísleifur.
Margir höfðu samband við Senu á meðan á truflununum stóð og að sögn Ísleifs tóku flestir vel í þau svör að verið væri að laga streymið þrátt fyrir að nokkrir hafi orðið gríðarlega reiðir. Nokkrar endurgreiðslubeiðnir hafi borist í kjölfarið.
„Við getum því miður ekki orðið við þeim,“ segir Ísleifur og vísar til þess að samkvæmt skilmálum Tix.is þurfi meira en 80 prósent af viðburðinum að vera með gæðavandamál og ekki hægt að horfa á upptöku án gæðavandamála innan 12 klukkustunda eftir að útsendingu lauk.
„Allir þekkja það að netið getur verið óstöðugt og mismunandi gott eftir því hvaða forrit, tæki og tengingar er verið að nota og höfum talað skýrt um það að við getum ekki borið ábyrgð á öllum þessum hlutum.“ segir Ísleifur.
„Við lendum öll í því að hlutir á netinu virka ekki af og til, m.a.s. hjá risafyrirtækjum eins og Netflix og YouTube. Ég verð líka að halda því til haga að við vorum að selja miða á „brekkusöng“ og hann hófst kl. 23 og var í fullkomnu lagi allan tímann. Dagskrá milli 21 og 23 var einstaklega glæsileg, og því skiljanlegt að þetta hafi valdið pirringi, en hér var samt um upphitun að ræða.“