Engar áætlanir til um afléttingu grímuskyldunnar

Flest bendir til þess að grímuskylda verði áfram í gildi hér á landi í sumar ef marka má áætlun stjórnvalda um afléttingu takmarkana samhliða bólusetningu þjóðarinnar. Áætlunin var birt í gær og er hún í fjórum áföngum – allt eftir því hversu hátt hlutfall þjóðarinnar hefur fengið fyrri sprautu bóluefnis.

Í umfjöllun Fréttablaðsins í dag kemur fram að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi svarað fyrirspurn blaðsins neitandi um hvort til væri áætlun um áframhald eða afléttingu grímuskyldu. Mætti því túlka það sem svo að gríman verði áfram skylda í sumar, eða að minnsta kosti svo lengi sem hætta er á að veiran breiði úr sér.

Fyrsta áfanga áætlunarinnar hefur þegar verið náð, 25 prósentum. Í byrjun maí er gert ráð fyrir 35 prósentum og að fjöldatakmarkanir fari upp í 200 manns. Í lok maímánaðar ætti helmingur þjóðarinnar að hafa fengið fyrri sprautu og þá stendur til að fjöldatakmarkanir fari upp í þúsund manns og fjarlægðarregla verði einn metri.

Seinni hluta júnímánaðar ætti öllum takmörkunum innanlands að verða aflétt en þá ættu 75 prósent landsmanna að hafa fengið bólusetningu. Sem fyrr segir er aftur á móti óvíst hvort þetta eigi við um grímuskylduna þar sem engin áætlun er til um áframhald eða afléttingu hennar. Alma Möller landlæknir hefur áður sagst vonast til þess að persónubundnar sóttvarnir, handsprittun til dæmis, séu komnar til að vera.