Hámarksaldur þeirra sem vinna hjá borginni verður endurskoðaður í komandi kjarasamningsviðræðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borginni.
Hámarksaldur þeirra sem starfa hjá borginni er 70-72 ár og þurfa þá starfsmenn borgarinnar að fara á
Í tilkynningunni segir að borgarráð hafi samþykkt að að grípa til aðgerða til að auka sveigjanleika starfsfólks Reykjavíkurborgar við starfslok vegna aldurs.
„Meðal annars var samþykkt að skoðað verði sérstaklega af hálfu borgarinnar hvernig koma megi til móts við kröfur um aukinn sveigjanleika við starfslok við undirbúning komandi kjarasamningsviðræðna,“ segir í tilkynningunni.
Starfshópur á vegum borgarstjóra um sveigjanleg starfslok heftur verið að störfum frá því í september á síðasta ári. Meðal niðurstaða hópsins er að skoða þurfi sveigjanleika í báðar áttir, þ.e að fólk eigi ekki aðeins möguleika á að hætta síðar heldur einnig að hætta eða draga úr störfum fyrir 67 ára aldur.
Þá sé mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra sem eldri eru og að henni verði miðlað áfram til annarra starfsmanna/kynslóða.
Tillögurnar sem samþykktar voru á fundi borgarráðs 18. ágúst fela auk framangreinds m.a. í sér að sett verður af stað þróunarverkefni til tveggja ára um sveigjanleg starfslok hjá Reykjavíkurborg.
Tilraunin mun taka til afmarkaðra hópa starfsmanna og er starfshópi sem mun halda utan um verkefnið ætlað að gera tillögur um nauðsynlegar breytingar til að hægt verði að bjóða upp á sveigjanlegri starfslok.