Endaði í ein­angrun með Ágústi Borg­þóri í þriðju til­raun

Ágúst Borg­þór Sverris­son, blaða­maður á DV, er ekki lengur einn í sótt­kví á Rauðarárstíg Hann greinir frá því á Face­book að eigin­kona hans hafi einnig smitast.

Hring­braut sagði frá því í gær að Ágúst hefði smitast á Ís­lenska barnum. Sagðist hann í sam­tali við Hring­braut hafa haldið að Co­vid væri bara eitt­hvað sem kæmi fyrir aðra. Hann var léttur í lund, þrátt fyrir að vera tölu­vert veikur.

Sjá einnig: Ágúst Borg­þór með CO­VID-19: Smitaðist lík­lega á Ís­lenska barnum

„Nýjar vendingar er vin­sæll frasi hjá mér í fyrir­sögnum,“ skrifar Ágúst í ein­lægri færslu á Face­book.

„Í dag gerðist það að Erla greindist loks já­kvæð í þriðju skimun og kom hingað á Rauðar­ár­stíginn. Þar var okkur boðið upp á tvö sam­liggjandi her­bergi með innan­gengt á milli. Við getum því verið hér saman í hálfan mánuð án þess að verða brjáluð hvort á öðru.“

Nýjar vendingar er vinsæll frasi hjá mér í fyrirsögnum. Í dag gerðist það að Erla greindist loks jákvæð í þriðju skimun...

Posted by Ágúst Borgþór Sverrisson on Tuesday, 20 April 2021