Emma Eyþórsdóttir er 17 ára nemandi MH. Nú um helgina fjallaði Fréttablaðið um það að nemandi MH væri með Kórónaveiruna COVID-19. Nemandinn sem um ræðir heitir Emma Eyþórsdóttir og er 17 ára gömul. Hún segir í samtali við Ríkisútvarpið að hún hafi verið með innanlandssmit á þriðja stigi. Hún smitaðist af veiruna eftir að hafa umgengis vin sinn sem hafði smitast af foreldrum sínum. Emma er nú í sóttkví og eyðir tímanum að mestu fyrir framan sjónvarpið.
Emma var einkennalaus í fjóra daga en fann fyrir flensueinkennum á sunnudaginn. Hún lýsir einkennunum á þá leið að hún hafi fundið fyrir lystarleysi, hausverk og fundið fyrir mikilli vanlíðan.
„Á mánudagsmorguninn vaknaði ég með dúndrandi hausverk og hita og kuldaköst og var þá komin með beinverki og hita,“ segir Emma og bætir við að hún hafi verið fljót að jafna sig. Hún er kvefuð og finnur fyrir þyngslum fyrir brjósti. Að öðru leyti ber hún sig vel.
Fjölmargir sem höfðu umgengist hana hafa neyðst til að fara í sóttkví en að hennar sögn hefur enginn tekið því illa eða orðið reiður. Hún óttaðist mest að samnemendur myndu bregðast illa við og fjölmargir hafi orðið óttaslegnir í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
„Ég var rosalega hrædd um það eins og með MH. Það voru allir í panikki í skólanum,“ segir Emma sem ákvað að segja nemendunum að sökin væri hennar.
„Og ég sagði þeim að þeir sem hefðu ekki verið með mér í tímum eða í nánum samskiptum við mig þyrftu ekki að hafa áhyggjur af þessu.,“ segir Emma sem er nú í sóttkví með móður sinni og kærasta. Emma segir að lokum: „Krakkarnir voru þakklátir fyrir það að vita það að þetta væri ég. Ég held ég hafi róað marga með því.“