Elvar Örn: Fiskarnir étnir lifandi – Hvetur almenning til að senda myndir

Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), hvetur almenning til að senda samtökunum myndir eða gögn sem staðfesta neikvæðar hliðar laxeldis í opnum sjókvíum.

Myndir sem kajakræðarinn Veiga Grétarsdóttir tók af laxi í opinni sjókví fyrr á þessu ári vöktu gríðarlega athygli, en þar mátti sjá mjög illa farna fiska svamlandi um. Elvar Örn segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag að myndefni Veigu hafi sýnt ógeðfellda hlið sjókvíaeldis á Íslandi sem fram til þessa hafi verið hulið almenningi. Raunar segir hann að særður lax og óhreinar kvíar séu regla en ekki undantekning í íslensku sjóeldi á laxi.

„400.000 laxar í íslenskum sjókvíum drápust í júní síðastliðnum og 1.350.000 laxar hafa drepist í sjókvíum það sem af er þessu ári. Til að setja það í samhengi má nefna að íslenski laxastofninn telur aðeins um 50-80 þúsund fiska. Langt því frá öllum eldisfiski er slátrað, stór hluti deyr alltaf úr þrengslum, sjúkdómum og sníkjudýrum án þess að neytendur hafi vitneskju um hvílíkar efnalaugar opnar sjókvíar eru. Nauðsynlegt er að opna augu neytenda fyrir þessu.“

Í grein sinni segir Elvar að undir yfirborði sjávar svamli fiskar sem eru oft á tíðum étnir lifandi af laxalús sem fjölgar gríðarlega í sjókvíaeldi þegar hitastig sjávar hækkar og spillir fyrir villtum stofnun laxfiska.

„Í kvíarnar eru sett þúsundir hrognkelsa hverra örlög eru eingöngu að éta laxalús, deyja og rotna undir kvíunum. Til viðbótar er eitrað fyrir laxalús, en helstu sérfræðingar iðnaðarins sögðu á sínum tíma að laxalús yrði ekki vandamál á Íslandi sökum þess hve sjórinn hér er kaldur. Þá hefur lax sloppið úr kvíum og erfðamengunar hefur þegar orðið vart á Íslandi og mun aukast með vaxandi sjóeldi,“ segir Elvar sem er þeirrar skoðunar að bráðnauðsynlegt sé að grípa í taumana áður en það verður of seint.

„Aðeins þannig verður náttúru- og efnahagslífi Vestfjarða og Austfjarða borgið. Ísland mun ekki komast hjá því að feta sömu leið og nágrannaþjóðirnar. Í Danmörku hefur sú ákvörðun þegar verið tekin að allt eldi verði á landi,“ segir Elvar sem beinir því til fólks að hafa augun opin.

„NASF heitir þeim trúnaði sem senda samtökunum myndir eða gögn sem staðfesta neikvæðar hliðar laxeldis í opnum sjókvíum. Hjálpið okkur að draga sjókvíaeldið upp á yfirborðið. Fylgist með baráttu NASF gegn laxeldi í opnum sjókvíum á www. nasf.is og með myllumerkinu #engarsjokviar.“