Elva svarar Frosta fullum hálsi: „Ég held ég verði nú að segja að þetta sé upp­­á­halds kenningin mín til þessa“

Elva Hrönn Hjartar­dóttir, fram­bjóðandi til formanns VR, svarar kenningum Frosta Loga­­sonar í færslu á Face­book.

Frosti var í Bi­ítinu á Bylgjunni í morgun en þar sagði hann Elvu koma beint úr smiðju femín­istanna Sól­eyjar Tómas­dóttur og Drífu Snæ­­dal og að hún hafi farið fram „fyrir alla femín­ista landsins“.

Elva segir að allt frá því að hún til­­kynnti um fram­­boðið hafi hún verið bendluð við ýmis­­legt eins og VG og Sjálf­­stæðis­­flokkinn en að til þess sé þetta upp­­á­halds kenningin hennar.

„Ég held ég verði nú að segja að þetta sé upp­­á­halds kenningin mín til þessa. Ég segi það enn og aftur: Ég er í þessu fram­­boði á mínum eigin for­­sendum af því að ÉG tók þá á­­kvörðun sjálf. Ég er full­kom­­lega fær um að taka eigin á­kvarðanir og það eru engin öfl á bak við mig, hvorki fjár­hags­­leg, pólitísk eða af öðrum toga. En ég hef vissu­­lega fengið heil­­mikla hvatningu alls staðar að,“ segir Elva og að hún hafi gefið kost á sér því fólki finnist hún eiga erindi í stöðu formanns.

„Af því að allt mitt líf hef ég lagt mig alla fram við að koma vel fram við náungann, tala máli þeirra sem ein­hverra hluta vegna geta það ekki sjálf og nýta mína for­réttinda­­stöðu í lífinu til að vinna í átt að rétt­látu sam­­fé­lagi. Þess vegna býð ég mig fram í for­mann VR,“ segir Elva.

At­­kvæða­­greiðslan til formanns og stjórnar VR hófst á mið­viku­­dag og stendur til næsta mið­viku­­dags. Þá kemur í ljós hvort að Ragnar Þór haldi á­­fram sem for­­maður eða Elva Hrönn tekur við.