Elskar að gefa gömlum hlutum nýtt hlut­verk og blanda þeim við nýtt

Hera Björk Þór­halls­dóttir, sem er lands­mönnum kunn fyrir söng sinn og hrífandi fram­komu, er jafn­framt lög­giltur fast­eigna­sali og starfar sem slíkur. Heru Björk er meira til lista lagt og hefur hún mikinn á­huga á innan­húss­hönnun sem og arki­tektúr. Hún að­stoðar meðal annars við­skipta­vini sína að stílsera eignir sínar fyrir sölu sem hefur vakið mikla lukku.

Það eru þó fleiri járn í eldinum sem Hera Björk lumar á. Sjöfn Þórðar heim­sækir Heru Björk í HÁS sköpunar­setrið í Síðu­múlanum en þar er fjöl­nota að­setur sem Hera Björk er búin að hanna og inn­rétta á­samt stöllum sínum. Þar er Hera Björk búin að gefa gömlum hús­gögnum og inn­réttingum nýtt líf í bland við nýtt og lita­palletturnar tóna vel saman við um­hverfið.

„Ég elska innan­húss­hönnun, arki­tektúr og sniðugar lausnir,“ segir Hera Björk og hefur ást­ríðu fyrir því að skapa nýtt út­lit. Hera Björk er líka iðin við að gefa gömlum hlutum líf og blanda þeim með nýju.

„Ég er mikið að fara í Góða Hirðinn að finna ger­semar og ef vinir mínir eiga ein­hver dá­sam­leg hús­gögn sem þeir ætla að henda þá banna ég þeim það,“ segir Hera Björk og er meðal annars með gamalt sófa­sett frá vinum sínum Begga og Pa­cas sem þeir geymdu fyrir hana í þrjú ár í sköpunar­setrinu. Hera er jafn­framt með afar gott auga fyrir lita­vali og lita­palletturnar heilla þar sem litirnir Dimmur og Sandur eru í for­grunni. Sjón er sögu ríkari og gaman að sjá hvernig Hera lætur ást­ríðuna ráða för í sköpun sinni.

Þátturinn Fast­eignir & Heimili verður á dag­skrá í kvöld klukkan 20.30 og er að jafnan ferskur, fjöl­breyttur og með per­sónu­legum blæ.