Elon Musk, eigandi Twitter og einn ríkasti maður heims, hefur heldur betur látið gamminn geisa á Twitter undanfarna klukkutíma.
Hringbraut sagði í morgun frá samskiptum þeirra Musks og Haraldar Inga Þorleifssonar, stofnanda Ueno og fyrrverandi starfsmanns Twitter, en þau hófust þegar Haraldur ávarpaði Musk og óskaði eftir svörum varðandi starfslok sín hjá Twitter.
Viðbrögð Musks vöktu talsverða athygli og brást hann til dæmis við með tveimur hláturtáknum þegar Haraldur útlistaði við hvað hann hefði starfað hjá Twitter.
Fréttablaðið greinir frá því að Musk hafi í morgun haldið áfram að tjá sig um málefni Haraldar á Twitter. Það gerði hann undir Twitter-færslu athafnamannsins Alex Cohen sem birti skjáskot af samskiptum þeirra Musks og Haraldar og sagðist hafa skemmt sér konunglega við lesturinn.
Musk leggur svo orð í belg undir færslu Cohen og segir meðal annars að raunin sé sú að Haraldur hafi ekki unnið neitt. Musk talar svo um að Haraldur hafi komið með þá „afsökun“ að vegna fötlunar gæti hann ekki skrifað en á sama tíma sé hann að skapa „storm“ á Twitter. „Ég get ekki sagt að ég beri mikla virðingu fyrir því,“ segir Musk síðan. Hann bætir svo við fyrir neðan:
„En var hann rekinn? Nei, það er ekki hægt að reka þig ef þú í fyrsta lagi vannst ekki.“
The reality is that this guy (who is independently wealthy) did no actual work, claimed as his excuse that he had a disability that prevented him from typing, yet was simultaneously tweeting up a storm.
— Elon Musk (@elonmusk) March 7, 2023
Can’t say I have a lot of respect for that.
But was he fired? No, you can’t be fired if you weren’t working in the first place!
— Elon Musk (@elonmusk) March 7, 2023