Ellý Ár­manns: Að vera barin niður það besta sem gat gerst

Ellý Ár­manns, mynd­listar­kona og fyrr­verandi fjöl­miðla­kona, hefur haft í nógu að snúast að undan­förnu í list­sköpun sinni og hafa myndir hennar selst eins og heitar lummur.

Ellý og unnusti hennar, Hlynur Sölvi Jakobs­son, voru í at­hyglis­verðu við­tali við Sigur­laugu M. Jónas­dóttur í þættinum Gesta­boð á Rás 1 á dögunum.

Í við­talinu talar Ellý um list­sköpunina og árin í kringum hrunið þegar hún lenti í fjár­hags­erfið­leikum í kjöl­far skilnaðar árið 2007.

„Húsið var skrifað á mig, lánin fóru og veistu ég opnaði ekki um­slögin,“ segir hún í við­talinu en stiklað er á stóru um efni þess á vef RÚV. Svo fór að bankinn hirti húsið og flutti Ellý í lítið her­bergi í mið­borg Reykja­víkur.

Í við­talinu segist Ellý hafa kennt sjálfri sér um fyrir að hafa skrifað upp á lánið, farið í stórt hús og geta ekki greitt reikninga. „Mér fannst ég bregðast börnunum og sjálfri mér því það fór allt til hel­vítis,“ segir Ellý sem telur, eftir á að hyggja, að þessi reynsla hafi komið henni til góða.

„Ég var barin niður en það var það besta sem kom fyrir mig. Ég hefði aldrei kynnst Hlyni ef ég hefði ekki farið í gegnum þetta, ég hefði aldrei byrjað að mála. Núna er ég búin að fá fyrir­spurn áður en myndirnar eru þornaðar. Það er draumur lista­mannsins.“