Elliði um djarfa mynd af Birtu: „Fátt slekkur hraðar í mér“

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, gerir djarfa ljósmynd af fyrirsætunni Birtu Blanco að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Birta ferðaðist nýlega til Texas til að taka upp klám og hefur hún birt svipmyndir frá ferðalaginu á samfélagsmiðlum.

Fréttamiðill DV fjallaði um málið í gær og birtust með fréttinni nokkrar myndir sem Birta hefur birt á samfélagsmiðlum. Fyrirsögnin er Bak við tjöldin hjá klámframleiðslufyrirtæki – Svona var hjá Birtu í Texas. Á einni myndinni má sjá Birtu nánast nakta og olíuborna krjúpa á kné og bundna í einhverskonar keðju. Fyrir framan hana er svo diskur með Cheetos-snakki.

Frétt DV vakti athygli margra og gerði Elliði málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.

„Kynhvötin er magnað fyrirbæri. Hún er drifkraftur þess að mannkynið viðhaldi sér og hefur í gegnum tíðina verið uppspretta magnaðra kenninga á sviði heimspeki, sálfræði og annarra fræðigreina,“ segir Elliði og bætir við að eðli málsins samkvæmt reyni markaðsfólk að spila með þessa hvöt.

„Finna hvað ræsir hana, örvar og æsir. Sjálfsagt hefur það verið grunnurinn að þessari mynd (sjá hér að neðan) sem er að finna í umfjöllun DV um myndatöku í Texas. Myndin er af ágætri íslenskri fyrirsætu sem eðlilegt er að bera fulla virðingu fyrir, hún er bara að vinna vinnuna sína og gerir það sjálfsagt vel.“

Elliði segir að honum sé ljóst að kynhvötin sé persónubundin og mótist af mörgu.

„Ég veit ekki með aðra en fátt fælir mig -persónulega- meira og slekkur hraðar í mér en ljósmynd af konu, bundinni með keðju, krjúpandi á gólfi, borðandi eitthvað af því sem líkist skál sem hundar borða af.“