Elliði „taggar“ Bjarna, Þórdísi og Áslaugu og vill forræðishyggjuna burt

„Svona gerist þegar stjórnvöld láta undir hælinn leggjast að þróa lagaumhverfið samhliða þróun samfélagsins,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja, á Facebook-síðu sinni.

Þar deilir hann frétt þess efnis að ÁTVR hafi farið fram á lögbann á hendur vefverslunum sem selja áfengi í smásölu hér á landi til neytenda. Samhliða því er einnig hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.

Elliði segir að áfengislögin séu barn síns tíma og staðreyndin sé sú að áfengir drykkir séu í dag séðir sem almenn neysluvara sem neytendur vilja í senn hafa frelsi til að neyta og frelsi til að versla af þeim sem þeir vilja.

„Hið sama gegnir um veðmálastarfsemi,“ segir Elliði sem „taggar“ Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í færslu sinni.

„Margir veðja á niðurstöður íþróttaleikja sér til skemmtunar. Þeir vilja frelsi til að velja af hverjum þeir versla slíka þjónustu í stað þess að vera knúnir til að versla við fyrirtæki með einokunarstöðu.“

Elliði segist gera þá kröfu á sinn flokk að hann standi vörð um frelsi og láti af forræðishyggju og fortíðarhugsun um einokun. „Taggar“ hann bæði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur iðnaðar- og ferðamálaráðherra í kjölfarið.

Þá hvetur hann sérstaklega nýja frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks, Jarl Sigurgeirsson, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Teit Björn Einarsson og Diljá Mist Einarsdóttur þar á meðal, til að taka þessi mál, sem og önnur frelsismál, upp á sína arma.