Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, styður Guðna Th. Jóhannesson til áframhaldandi setu á stóli forseta Íslands. Í stuðningsgrein í Morgunblaðinu í dag segir Elliði að það séu forréttindi að fá að kjósa þjóðarleiðtoga sem hann treysti einlæglega til verka.
„Til að vera ærlegur vil ég hér segja frá því að við seinustu kosningar kaus ég Guðna ekki. Núna mun ég hins vegar sannarlega mæta á kjörstað og leggja mitt litla lóð á þá mikilvægu vogarskál sem ráða mun því hver fari með þetta háa embætti. Með því halla ég ekki á mótframbjóðandann,“ segir Elliði.
„Ég mun kjósa Guðna með þeirri vissu að hann muni halda áfram embættisstörfum sínum með óbreyttum ásetningi um að rækja sín störf í takt við hjartslátt þjóðarinnar. Hann hefur sýnt að hann er tilbúinn til að ganga fram af heilindum, nánd og alúð samkvæmt viðurkenndum venjum í lýðfrjálsu ríki, þar sem valdið er fyrst og fremst þingbundið.“
Segir Elliði að meðal afasystkina minna í Stóra-Dal undir Eyjafjöllum hefði Guðni sjálfsagt fengið þau ummæli að hann væri drengur góður. Meðal móðurfólks Elliða í Eyjum hefði hann verið sagður fínn peyi. „Betri verða ummæli um einn mann ekki. Ég styð Guðna, og hvet aðra til að gera það einnig.“