Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfus, bendir á heldur betra sturlaða staðreynd í pistli á Facebook í morgun sem betir heitið: „Virkjum meira.“
„Vissir þú að kolefnissporið á bak við stafræna hlustun á lagið Despacito er hærra en vegna samlagðrar árs rafmagnsnotkunar Chad, Guinea-Bissau, Somalíu, Sierra Leone og Miðafríku lýðveldisins? Bara við að hlusta á þetta eina lag var losað meira af gróðurhúsalofttegundum en allir bílar á Íslandi losa,“ skrifar Elliði.
„Valið er á milli þess að gera tilraun til að hægja á starfrænni þróun (sem mun mistakast) eða sækja meira af grænni orku.“
„Stafræni heimurinn er afar orkuháður og hann stækkar á hverju ári. Stærsta framlag Íslands til loftslagsmála er að virkja meira. Það þarf að hugsa umhverfismál út frá öðru en eingöngu landvernd,“ skrifar Elliði að lokum.