Elliði Vignisson, Sjálfstæðismaður og bæjarstjóri Ölfuss, hvetur Garðbæinga til að gefa Margréti Bjarnadóttur tækifæri. Margrét hefur ákveðið að bjóða sig fram í 5. sætið á lista Sjálfstæðisflokks í Garðabæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor.
Margrét á stjórnmálaáhugann ekki langt að sækja en hún er dóttir Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra. Elliði hefur þekkt Margréti lengi og veit hvað býr í henni.
„Þessa konu hef ég þekkt frá því að hún var stúlka. Þrátt fyrir að þekkja bæði foreldra hennar og afa þá kynntist ég henni sem einstaklingi og veit hve mikið er í hana spunnið. Ég hvet fólk til að gefa henni möguleika sem einstaklingi, óháð ætterni. Frændgarður á hvorki að hjálpa né hindra innan afls sem styður frelsi einstaklings. Þeir sem kynnast henni sem einstaklingi eru vísir til að styðja hana í fimmta sætið,“ segir Elliði á Facebook-síðu sinni.
Margrét er þrítug og stundar nám í lögfræði og er auk þess með sveinspróf í matreiðslu. Hún hefur búið í Garðabæ alla sína tíð og vill hvergi annars staðar vera. Í framboðstilkynningu sinni í gær sagðist Margrét leggja áherslu á málefni fjölskyldunnar, leikskólamál og húsnæðismál og þá vill hún auka möguleika ungs fólks á að kaupa sér eign í Garðabæ.