Elliði deilir fal­legasta erindi sem honum hefur borist í 17 ár sem bæjar­stjóri

„Eftir bráðum 17 ár í starfi bjæar­stjóra telja erindin sem ég hef fengið til með­­ferðar í þúsundum. Jafn­vel tugum þúsunda. Þetta erindi frá honum Hrólfi Vil­helm (Angeli­a Róberts­dóttir), vini mínum og ná­granna, er eitt hið fal­­legasta,“ skrifar Elliði Vignis­son bæjar­stjóri Ölfus á Face­book í dag.

„Hér minnir hann á mikil­vægi þess að við hugum að hjóla­stígum í dreif­býlinu. Eðli málsins sam­kvæmt fer þetta vandaða erindi til form­legrar með­ferðar og verður lagt fyrir bæjar­stjórn á morgun. Að auki fékk þessi efni­legi drengur per­sónu­legt svar eins og hann bað um,“ bætir hann við.

„Fram­tíðin er björt á meðan við eigum svona öfluga ein­stak­linga til að taka við keflinu. Hamingjan er hér,“ skrifar Elliði að lokum en bréfið má sjá hér að neðan.

Hróflur