„Sjálfsagt er mismunandi hvernig fólk sér Jesú og auðvelt að bera virðingu fyrir því að það veki sterkar tilfinningar þegar persónulegum hugmyndum um útlit hans er ögrað,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.
Elliði vísar þarna í mál sem nokkuð hefur verið fjallað um síðustu daga, þá ákvörðun Kirkjunnar að teikna Jesú Krist upp með brjóst í kynningarefni fyrir Sunnudagaskólann.
Elliði segir eðlilegt að það veki sterkar tilfinningar þegar hugmyndum um útlit hans er ögrað, það sé jafn eðlilegt að bera virðingu fyrir því og tilraunum kirkjunnar til að senda skilaboð um að hún umberi allt. Elliði lýsir svo sínum Jesú.
„Minn Jesú hefur útlit kærleikans. Hann er í senn hvítur og svartur, samkynhneigður, trans miðaldra kall. Gildvaxin gagnkynhneigð gömul örvhent kona. Risvaxinn dvergur í leðurbuxum og hvítum kufli, krúnurakaður með strípur og perm, hár niður á hnakka, berhöfðaður með bleika húfu. Sléttrökuð skeggvaxin millistéttar Indversk kona af breskum aðalsættum með Roingjaútli og all íslenskt vestfirskt nef.“
Elliði bendir á í færslu sinni á Facebook að kærleikurinn hafi ekki útlit, hann sé langlyndur og góðviljaður.
„Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. (Korintubréf).“