Elliði birtir launa­seðilinn vegna rang­færslna: „Ég er með góð laun og fel það ekki“

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir það furðulegt að laun hans hafi verið ýkt um tæpa hálfa milljón en samantekt á mánaðarlaunum fimm bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins var birt á Facebook síðunni Jæja í gær. Samkvæmt þeirri samantekt voru laun Elliða 2,26 milljón krónur miðað við árið 2019.

„Þessir bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins hafa þegar sýnt kjarabaráttu Eflingarfólks fullkomna vanvirðinu með því að hóta að setja lög á verkfallið og láta ekki ná í sig eins og bæjarstjór Kópavogs sem virðist horfinn af yfirborði jarðar,“ segir í færslu Jæja um málið.

„Það hlýtur að vera erfitt að semja ef þetta er dæmi um það sem almennt er á ferðinni í þessum viðræðum“

Á Facebook síðu sinni greinir Elliði frá því að laun hans hafi aldrei verið feimnismál en hann hefur starfað sem bæjarstjóri í fjórtán ár. „Ég, eins og kollegar mínir um allt land, er með góð laun og fel það ekki. Þess vegna hef ég tryggt að upplýsingar um þau séu ætíð aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins,“ segir Elliði enn fremur.

„Mér þykir það því furðulegt að í umfjöllun um sanngjörn laun skuli það þykja sanngjarnt að ýkja laun mín sem bæjarstjóra um hátt í hálfa milljón,“ bætir hann við og birtir með færslunni launaseðil sinn.

Samkvæmt launaseðli Elliða er hann með tæpar 1,8 milljón krónur í mánaðarlaun og er því að ræða um 466 þúsund króna mun. „Það hlýtur að vera erfitt að semja ef þetta er dæmi um það sem almennt er á ferðinni í þessum viðræðum.“