Ellen Kristjáns: „Til Guðmundar, þú þarft ekkert að vera hræddur“

Tónlistarkonan Ellen Kristjánsdóttir sendi Guðmundi Baldurssyni, stjórnarmanni í Eflingu, ákveðin skilaboð á Facebook-síðu sinni í gær í kjölfar. Ellen er mágkona Sólveigar Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Eflingar, sem sagði af sér á sunnudag.

Ellen vísar í færslu sinni til ummæla Guðmundar þegar hann var spurður hvort hann vildi taka við stjórnartaumunum í Eflingu. Guðmundur sagðist ekki hafa ýkja mikinn áhuga á því.

„Það er komið svo mikið af fólki í kring­um þessa sósí­al­ista, þetta er svo orðljótt og maður hefur ein­hvern veg­inn ekki áhuga á að sökkva sér í þetta hyl­dýpi af orðaflaumi sem er ekki fal­leg­ur.“

Ellen, sem lýsir sig sjálf sem sósíalista, sendir Guðmundi stutta sögu:

„Hér er ein sönn og falleg saga:
Tveir ungir drengir, J og E, voru á róló og tvær stúlkur sem þeir þekktu ekkert.
Ein þeirra spyr J: „Trúir þú à guð?”
J segir: „nei“.
Ha? oj barasta, trúirðu ekki á guð?
E tekur þá til máls og segir við stúlkuna: „Skammastu þín að vera dæma hann, skilurðu ekki að guð bjó J til svo hann myndi ekki trúa á guð”

Ellen segist vera stolt af því að vera mágkona Sólveigar Önnu og ber hún henni afar góða söguna.

„Ég hef þekkt og elskað hana síðan hún var 6 ára gömul. Falleg og best. Frábær mamma, systir, dóttir, vinkona, mágkona, frænka. Dýravinur. Heiðarleg, réttsýn í meiralagi- þekki engan sem hefur lesið eins mikið og Solla - Hún er verkalýðsforinginn sem fólkið hefur lengi beðið eftir og hefur svo sannarlega gert meira á þessum 3 1/2 árum en nokkur annar hefur gert á síðustu 30 - 40 árum. En eins og gerist alltof oft þá er þeim góðu bolað í burtu af oftast mis/lyndu gráðugu fólki sem vill ekki neinar breytingar því það gæti eyðilagt drauminn um snekkjuna og gullið.“

Ellen endar pistilinn á þessum orðum:

„Til Guðmundar (þú þarft ekkert að vera hræddur) hér geturðu lesið þér til um Sósíalisma: Sósíalismi, einnig nefndur Félagshyggja, er yfirheiti fjölda hugmyndafræða og stjórnmálahreyfinga sem einkennast af af hugmyndum um samneyslu og sameiginlegri eign samfélagsins á framleiðslutækjum, jarðnæði og/eða auðlindum og að þessum eignum sé stjórnað með hag allra í samfélaginu fyrir brjósti. Hugmyndin er að slík skipan myndi útrýma mestmegnis efnahagslegu misrétti og stéttaskiptingu.

Kærleikskveðjur og von um betri heim með verkalýðsforingjum sem brenna fyrir réttlæti.

Ellen Kristjánsdóttir.“